LbhÍ - Reiðmaðurinn


Minnka letur
Stækka letur
In English

Reiðmaðurinn

 

Reiðmaðurinn
Námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Námið sem kallast Reiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram ca. eina helgi í mánuði frá september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhlið í gegnum námsvef skólans.
     Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem nemendur koma einu sinni í mánuði með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af reiðmennskunni. Einnig er farið yfir bóklegt efni í fyrirlestrum og með fjarnámi. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum heima.
     Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er unnið í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda. 
     Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir, en að faglegri uppbyggingu námsins kemur Gunnar Reynisson, Þorvaldur Kristjánsson ásamt stundakennurum Reiðmannsins.

Klikkaðu á línurnar hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar!

Nánari lýsing á náminu
Almennar kröfur og verð

Reiðmaðurinn er nú kenndur:


Reiðmaðurinn 2011-2013

Er kenndur í Rangárhöllinni á Hellu og Víðidal í Reykjavík.

Reiðmaðurinn 2012-2014
Er auglýstur núna á Miðfossum, á Akureyri og á Flúðum.
Æskilegt er að viðkomandi skrá sinn óskastað og - einn af þessum þremur - á umsóknareyðublaðið hér neðst.


Þeir sem hafa áhuga á að sækja um nám í reiðmanninum eru hvattir til að prenta út umsóknareyðublaðið hér neðar á síðunni, fylla út og póstleggja til okkar eða skanna inn og senda með tölvupósti á endurmenntun@lbhi.is

Ef áhugahópur er til staðar innan ákveðins hestamannafélags kemur vel til greina að hefja næsta skólaár á viðkomandi stað, uppfylli staðurinn þær kröfur sem settar eru vegna kennslunnar og næg þátttaka fyrir hendi. Hafið samband við Endurmenntun LbhÍ og málið verður skoðað.


Hvað er sagt um Reiðmanninn?


Valdís
Hermannsdóttir

Rúnar
Sigurðsson


Umsóknareyðublað


Ásdís Helga
Bjarnadóttir
S. 843 5302
asdish@lbhi.is


Gunnar Reynisson
S. 843 5303
gunnar@lbhi.is


Þorvaldur Kristjánsson
S. 866 2199
thorvaldurk@lbhi.is



Deila


        
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi